Hæ kæru samnemendur. Hvað segið þið, hvernig hefur gengið? Gekk ekki bara öllum svaka vel í ónæmis- og meinafræði, sérstaklega ónæmisfræðihlutanum!!?

Var svoldið spes próf svona að mínu mati, en jæja, maður vonar það besta bara.
Heyrðu, eitthvað skemmtilegt, próflok á mánudaginn!! Jibbý, djöfull verður gott að klára og til þess að gera daginn ennþá skemmtilegri datt okkur það snjallræði í hug að við myndum hittast þarna á mánudagskvöldið og pústa aðeins og fagna því að önnin sé loksins búin. Mér datt sú "snilldar"hugmynd í hug að hittast upp í Keiluhöll þar sem við getum fengið okkur að borða, fengið okkur eins og ein, tvo eða jafnvel nokkra öllara og tekið svo kannski tvo leiki í keilu áður en við förum svo aftur á barinn og fáum okkur aðeins fleiri ef við erum mjög þyrst!!

Hvernig líst fólki á þetta?
Ég sendi tölvupóst upp í Keiluhöll til að fá verð á keilu og hvort við gætum fengið matar- og bjórtilboð en er ekki búinn að fá neitt svar en þeim sem líst vel á þetta endilega kommentið hérna fyrir neðan svo ég geti kannski gefið einhverja tölu um hvað margir mæta!! Endilega látið þetta berast um bekkinn og ég er reyndar að spá í líka að senda bara fjöldapóst þar sem ég er með öll netföng, geri það á morgun eða laugardaginn þegar ég er búinn að fá einhver verð uppgefinn!!
Annars gangi ykkur öllum rosa vel að læra fyrir lyfjafræðina og vonum það besta!!
Með kærri lærdóms og próflokafílingskveðju
Garðar